Icetransport óskar eftir kraftmiklum einstaklingi í 100% starf í þjónustudeild fyrirtækisins að Selhellu 9, 221 Hafnarfirði.
Um ræðir sæti í móttöku fyrirtækisins og starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini, erlenda aðila og fleira.
Helstu eiginleikar sem leitað er að eru:
- Góð íslensku kunnátta skilyrði.
- Stundvísi.
- Einstaka þjónustulund.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Góð ensku kunnátta bæði í rituðu og töluðu máli.
- Grunn Word og Excel kunnátta.
Kostur er ef einstaklingur hefur þekkingu á Navision.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um á starfsumsokn@icetransport.is merkt Móttaka 2025.