Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Tasty

Afgreiðsla og grill

Tasty · Borgartún 29, 105 Reykjavík
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-03-31

Við á Tasty erum að leitast eftir að bæta við okkur rétta fólkinu í fullt starf / aukavinnu / hlutastarf hjá okkur, í Skútuvogi og Borg29 ásamt matarbílnum okkar.

Allskonar vinnutímar í boði, hvort það sé í hádeginu, kvöldin eða um helgar eða fullu starfi.

Okkur vantar einhverja snillinga sem eru áreiðanlegir og með góða þjónustulund, með frumkvæðni í starfi, sem geta unnið undir álagi þegar það á við, hvort sem það er í afgeiðslu eða á grilli. Íslensku kunnátta skilyrði og kunnátta á Dineout sölukerfið er kostur ásamt bílprófi. 

Endilega takið fram hvaða starf óskað er eftir.

Okkur vantar í eftirfarandi stöður:

Vaktavinnu (2-2-3) - Fullt starf

Óskum eftir vönum grillara í starf hjá okkur, þarf að geta unnið undir álagi þegar það á við.

Dagvakt 09:30-14:00 alla virka daga (Skútuvogi og Borg29 í Borgartúni)

Óskum eftir að ráða manneskju sem getur tekið hádegin með okkur  í afgreiðslu og léttum almennum eldhússtörfum og þrifum. Æskilegt er að viðkomandi kunni á Dineout sölukerfið og talar íslensku.

Kvöldvakt 17:00 - 21:30 virka daga (Borg29 í Borgartúni)

Óskum eftir að ráða manneskju í aukavinnu sem getur stokkið inn og tekið einhver kvöld með okkur og séð um afgreiðslu ásamt léttum almennum eldhússtörfum og þrifum. Æskilegt er að viðkomandi kunni á Dineout sölukerfið og talar íslensku og ensku.

Auka fólki um kvöld og helgar (Skútuvogi- Borg29 - Matarbíll / Grillveislur)

Óskum eftir grillurum í aukavinnu fyrir komandi sumar, þurfa að geta unnið undir álagi og verið með bílpróf. 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%