Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Leikskólinn Óskaland

Óska eftir einstakling til að vera stuðningur við barn með sykursýki týpu 1.

Leikskólinn Óskaland · Finnmörk 1, 810 Hveragerði
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Leikskólinn Óskaland er níu deilda leikskóli. Óskaland er staðsett við Finnmörk 1, í Hveragerði í grónu hverfi þar sem stutt er í fjölbreytta skógi vaxna náttúru.  Árið 2025 voru fjórar nýjar deildir teknar í notkun við leikskólann auk glæsilegrar lóðar.    

Einkunnarorð Óskalands eru: Leikur – lífsgleði – lærdómur  

Í Óskalandi er sjálfsprottinn leikur aðal kennslutækið auk þess sem unnið með grenndar- og útikennslu, Vináttuverkefni Barnaheilla, Hugarfrelsi og Lubba.   

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt og í hóp.   

Menntun og reynsla sem gæti nýst í starfi:  

  • Starf með börnum  

  • Reynsla af sykursýki 1   

  • Leikskólaliðamenntun  

  • Sjúkraliðamenntun eða önnur menntun á heilbrigðissviði  

Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á  íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  

Fríðindi í starfi:  

  • Forgangur í leikskólapláss   

  • Frítt fæði  

  • Stytting vinnuvikunnar   

  • Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði  

Umsóknum skal skilað á netfangið: oskaland@hveragerdi.is ásamt ferliskrá.  

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri  og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is  

Starfið hentar öllum kynjum.  Laun eru greidd  samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.  

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%