Coripharma leitar að lausnamiðuðum, metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf tæknimanns í umsjón og viðhaldi vélbúnaðar við tæknideild.
Tæknideild Coripharma er stoðdeild innan framleiðslu- og verkfræðisviðs og sér um viðhald og eftirlit með mjög fjölbreyttum tækjabúnaði í verksmiðju og á rannsóknarstofum fyrirtækisins, sem staðsett er í Hafnarfirði.
Starfsemi Coripharma þarf að uppfylla fjölbreyttar og strangar kröfur lyfjaiðnaðarins, þar á meðal GMP-reglur. Tæknideildin gegnir lykilhlutverki í að tryggja að öll tæknikerfi og tækjabúnaður uppfylli þessar kröfur á hverjum tíma.
Í starfi tæknimanns felst fjölbreytt tæknileg umsjón og viðhaldsvinna við tækjabúnað og tæknikerfi fyrirtæksins skv. skipulagi deildarinnar. Mikilvægur þáttur af starfinu er virk þátttaka í öryggis- og gæðamálum. Öll viðhaldsvinna er skráð í miðlægt viðhaldskerfi. Unnið er á dagvöktum en að auki þarf teymið á skipta á milli sér bakvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Ragnarsson, deildarstjóri Tæknideildar í síma 420 6711 eða í tölvupósti kristinnr@coripharma.is og Sigurður Ágúst Einarsson, sviðsstjóri framleiðslu- og verkfræðisviðs í tölvupósti: sigurdure@coripharma.is