Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
H

Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

starfatorg

Upplýsingar

Menntun
phd

Starfslýsing

Frestur: 30.04.2026
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands með sérhæfingu í læknisfræðilegri myndgreiningu. Starfið er styrkt til þriggja ára af Rannsóknasjóði Rannís. Verkefnið miðar að því að nota nýlega aðferð sem byggð er á ómun með skuggaefni (SHAPE) til þess að meta og kortleggja þrýsting í legvefjum. Þannig verður mögulega til nýtt rannsóknarviðmið sem getur hjálpað til við greiningu á legslímuvillu/endómetríósu og legslímukirtla- og vöðvavillu, auk þess að greina hnúta í legi og fylgjast með árangri meðferðar. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Thomas Jefferson University, Philadelphia, PA, USA. Leiðbeinandi og aðalrannsakandi verkefnisins er Dr. Valgerður G. Halldórsdóttir, lektor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild. Verkefnið er unnið í samvinnu við Thomas Jefferson University, Philadelphia, PA, USA. Hópurinn þar er leiddur af Dr. Priscillu Machado og Dr. Flemming Forsberg sem eru sérfræðingar í notkun skuggaefna við ómun. Báðir rannsóknarhópar sérhæfa sig í klínískri ómun og hafa áður starfað saman að þróun SHAPE aðferðarinnar og beitt henni á mismunandi svæði líkamans.
Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%