Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf gagnasérfræðings í deild gagnamála á sviði gagna og umbóta. Sviðið gögn og umbætur annast skipulega öflun, skráningu og úrvinnslu ýmissa hag- og fjármálagagna sem Seðlabankinn safnar í samræmi við lögbundið hlutverk sitt. Upplýsingar þessar leggja grunn að greiningum og mati bankans á mikilvægum þáttum peningamála og stöðugleika fjármálakerfis. Auk þess sér sviðið um opinbera birtingu tölulegra gagna á vef bankans. Sviðið ber jafnframt ábyrgð á verkefnastýringu og samhæfingu umbótaverkefna þvert á starfsemi bankans. Það tryggir markvissa forgangsröðun, eftirfylgni og framgang verkefna í samræmi við stefnu og lögbundnar skyldur bankans.