Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi almennrar endurhæfingardeildar aldraðra L2. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og aðra stjórnendur og samstarfsfólk. Almenn endurhæfingardeild er staðsett á Landakoti í hjarta Reykjavíkur í fallegu og friðsælu umhverfi. Deildin veitir öldruðum styttri endurhæfingu þar sem markmiðið er að efla færni einstaklings við athafnir daglegs lífs, auka hreyfigetu og stuðla að farsælli og öruggri útskrift heim. Lögð er áhersla á að efla gæðamenningu á deildinni, styðja vel við aðstandendur og skapa sterkt og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska og þróun starfsfólks eru í forgrunni. Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1.maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur endurhæfingarþjónustu.