S.Guðjónsson leitar að hæfileikaríkum, þjónustuliprum og metnaðarfullum söluráðgjafa í verslun okkar að Smiðjuvegi 3.
Starfið felur í sér sölu og ráðgjöf á sviði lýsingar í einni af glæsilegri verslunum á sviði raf- og lýsingarbúnaðar.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfsumhverfi.
Við leitum að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hefur reynslu, metnað og næmt auga fyrir hönnun og útliti.
Um framtíðarstarf er að ræða.