Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til liðs við mannauðsteymi Íslandsbanka. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi þar sem nákvæmni, þjónustulund og fagmennska skipta miklu máli. Starfið heyrir beint undir mannauðsstjóra.
Launavinnsla gegnir lykilhlutverki í rekstri bankans og ber ábyrgð á nákvæmum og áreiðanlegum launaútreikningi fyrir starfsfólk. Launavinnsla er hluti af mannauðssviði og starfar náið með fjármálasviði og stjórnendum bankans að tryggja skilvirka, gagnsæja og faglega meðferð launatengdra mála.
Í starfinu gefst tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum á launaferlum, styðja við stjórnendur og starfsfólk með ráðgjöf í launatengdum málum og vinna með fjölbreytt gögn og kerfi.