Kvennaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara í efnafræði skólaárið 2026-2027 með möguleika á framlengingu á ráðningu. Ráðningartími er frá 1. ágúst 2026. Kvennaskólinn í Reykjavík er framhaldsskóli sem býður upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum, á starfsbraut og íslenskubraut. Nemendur eru um 680 og starfsfólk skólans um 70.