Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða einstakling til að sinna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd í úrræði á vegum stofnunarinnar. Starfið felur m.a. í sér þjónustuviðtöl, ráðgjöf og upplýsingagjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd og samskipti við hagsmunaaðila. Viðkomandi myndi einnig vera tengiliður við öryggisverði og sinna reglubundnu eftirliti á húsnæði og íbúaeiningum ásamt því að vera tengiliður við húsnæðisteymi stofnunarinnar. Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar; Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.