Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf fulltrúa í teymi félags- og kjaramála á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á réttindamálum launafólks og kjarasamningum.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta þjónustu við KÍ, aðildarfélög þess og félagsfólk. Mikilvægt er að viðkomandi hafi framúrskarandi samskiptahæfni, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi ríkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.