Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða mannauðsstjóra. Við leitum að drífandi og framsýnum einstaklingi í spennandi og krefjandi starfsumhverfi. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á og leiðir framkvæmd mannauðsmála innan embættisins í umboði lögreglustjóra og situr í yfirstjórn embættisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hjá embættinu starfa um 200 manns í ólíkum og krefjandi störfum. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking þar sem áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda og góð samskipti. Við ráðningar hjá LSS er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.