Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi? Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði. Viðkomandi mun koma til með að sinna skoðunum á vinnuvélum og tækjum ásamt því að veita leiðbeiningar á sviði vinnuverndar og vinna að sérverkefnum. Gleði, lausnarmiðað hugarfar og léttleiki eru eiginleikar sem við leitum að. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Skoðunarsvæðið er almennt höfuðborgarsvæðið og nærliggjandi sveitarfélög en einnig geta komið til skoðanir á öðrum landsvæðum. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum getur verið um lengri ferðalög að ræða.