Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða metnaðarfullan geislafræðing til að taka að sér hlutverk verkefnastjóra á röntgendeild á Húsavík. Viðkomandi starfar í dagvinnu og á bakvöktum um helgar. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða samkvæmt samkomulagi. Leitað er að einstakling sem er sjálfstæður í starfi, sýnir frumkvæði og hefur áhuga á að taka þátt í áframhaldandi þróun myndgreiningarþjónustu HSN. Á Húsavík er heilsugæsla og einnig eru heilsugæslustöðvar á Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Laugum og Mývatnssveit. Jafnframt er á Húsavík sjúkradeild og hjúkrunardeildir og einnig er þar starfrækt göngudeild sérfræðiþjónustu. Hér má sjá kynningu á HSN í Þingeyjarsýslum. Þar sem þjónusta og gott starfsumhverfi koma saman Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn