Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa á Ísafirði. Hér gefst kjörið tækifæri til að öðlast breiða þekkingu innan fagsins, vinna með skemmtilegu fólki og verða hluti af góðri liðsheild. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.