Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til afleysingar á Patreksfirði til 31. ágúst 2026 á legudeild og heilsugæslu. Um er að ræða í 80 til 100% starf. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.