Komdu í lið með okkur! Við erum alltaf til í að bæta við okkur öflugu og frábæru fólki á Sjúkrahúsið á Akureyri. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. SAk er annað tveggja sérgreina sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Vilt þú taka þátt í okkar vegferð? Hér getur þú lagt inn umsókn um tímabundið ráðningarstarf. Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega. Umsækjendum verður ekki svarað sérstaklega en ráðningaraðilar munu hafa samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til. Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur deildarstjóra mannauðsdeildar á netfangið kristjanak@sak.is