Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa með börnum með sértækan stuðning í sumarfrístund í Fjarðabyggð. Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. - 4. bekk sumarið 2026. Stuðningsfulltrúar veita félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við börnin í almennri sumarfrístund. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:15 frá og með þriðjudeginum 8. júní til og með föstudagsins 14. ágúst. Lokanir eru misjafnar eftir kjörnum, hver frístund lokar í fjórar vikur í senn, þá taka við önnur verkefni eins og að hjálpa í öðrum frístundum, þrif, frekari undirbúningur og fleira.