Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Smáraskóli

Umsjónarkennari í 3. - 5. bekk skólaárið 2026-27

Smáraskóli · Dalsmári 1, 201 Kópavogur
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Smáraskóli leitar að umsjónarkennara í 3. - 5. bekk fyrir skólaárið 2026 - 2027. Í Smáraskóla er litið á hvern árgang sem eina heild þar sem teymi kennara vinna með nemendum.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt  uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar, skólinn er heilsueflandi grunnskóli og verið er að vinna að því að Smárskóli verði réttindaskóli UNICEF.

Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar ásamt nemendum í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti. 

Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.

Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%