Viltu leiða upplýsingatæknirekstur stærstu verslunarsamstæðu Íslands?
Hagar óska eftir að ráða öflugan leiðtoga til að taka ábyrgð á upplýsingatæknirekstri samstæðunnar.
Hagar gegna lykilhlutverki í daglegu lífi fólks, en undir hatti Haga starfa fyrirtæki á borð við Bónus, Hagkaup, Olís, Eldum rétt, Bananar, Stórkaup o.fl. með yfir 100 staðsetningar um allt land.
Á hverjum degi styðja upplýsingatæknikerfi Haga við rekstur verslana, vöruhúsa, dreifikerfa, netverslana og þjónustustöðva á Íslandi. Rekstur þessara kerfa er einn af grunnþáttum í starfsemi samstæðunnar.
Við leitum að einstaklingi sem vill leiða rekstur þessara innviða og þróa þá áfram í takt við vaxandi tæknikröfur framtíðarinnar.
Hlutverkið:
Sem forstöðumaður UT reksturs berð þú ábyrgð á rekstri og framþróun tæknilegra innviða Haga og dótturfélaga þeirra.
Þú munt leiða teymi sérfræðinga og birgja sem sjá um þá innviði sem halda uppi daglegum rekstri verslana, vöruhúsa, dreifingar og stafrænnar þjónustu samstæðunnar.
Í starfinu munt þú meðal annars:
Auk þess að vera reynslumikill leiðtogi með sterkan bakgrunn í rekstri upplýsingatækni er mikilvægt að þú hafir:
Það er kostur ef þú hefur reynslu úr stórum rekstrarumhverfum, til dæmis í smásölu, fjármálum eða annarri starfsemi sem krefst þess að kerfin séu tiltæk allan sólarhringinn.
Þetta er tækifæri til að:
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og verður þeim svarað að ráðningu lokinni.