Nína Bar við Hverfisgötu 20 leitar að veitingastjóra. Nína er sportbar, lounge, veitingastaður og skemmtistaður.
Við höfum nýlega hafið matarsölu á staðnum. Leitað er að aðila með góða reynslu af þjónustustörfum. Reynsla af stjórnun og sölu er mikill kostur, sem og framreiðslumenntun.
Opnunartími: Virka daga frá kl. 17:00 Helgar frá kl. 12:00