Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir þroskaþjálfa til á grunnskólastig. Teymiskennsla og teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.