Snæland Grímsson óskar eftir að ráða öflugan aðalbókara til starfa. Viðkomandi mun bera ábyrgð á daglegum bókhaldsverkefnum, afstemmingum og skýrslugerð í samræmi við lög og reglur. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Um Snæland Grímsson:
Snæland Grímsson ehf. er rótgróið fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu. Fyrirtækið var stofnað af Snæland Grímssyni og fjölskyldu hans árið 1945. Fyrirtækið hefur alla tíð síðan lagt áherslu á persónulega þjónustu sem byggð er á áratuga reynslu og þekkingu á íslenskri ferðaþjónustu.
Skrifstofur fyrirtækisins eru í nýlegu björtu húsnæði að Hádegismóum þar sem boðið upp á fjölskylduvænt vinnuumhverfi og vinnutíma.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) í síma 511-1225.