Fagtækni hf. óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í starf skrifstofustjóra á skrifstofu fyrirtækisins miðsvæðis í Kópavogi. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi tekur virkan þátt í daglegum rekstri fyrirtækisins. Leitað er að jákvæðum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem tekur frumkvæði og tryggir faglega umsýslu og hnökralausan rekstur skrifstofunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Um Fagtækni hf.:
Fagtækni hf. er sérhæft tæknifyrirtæki í hönnun og uppsetningu tækni- og rafmagnskerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir. Frá upphafi hefur Fagtækni verið leiðandi á sviði rafmagnskerfa á Íslandi. Fagtækni tekur einnig að sér heildarverkefni sem aðalverktaki, þar sem raf- og tæknikerfi eru lykilhlutar stærri framkvæmdaverka. Fagtækni leggur áherslu á áreiðanleika, fagmennsku og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. Fagtækni fagnaði á síðasta ári 30 ára farsælum ferli sem starfsfólk lítur stolt til baka á, en er enn spenntara fyrir framtíðinni.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Frekari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is) í síma 511-1225