Land og skógur óskar eftir að ráða metnaðarfullan, drífandi og útsjónarsaman einstakling í starf mannauðs- og launafulltrúa á svið Mannauðs og miðlunar.
Starfið er án staðsetningar og hægt að sinna því frá öllum starfstöðvum stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er sviðstjóri sviðs Mannauðs og miðlunar. Á sviðinu starfar góður hópur sem sér um mannauðsmál, launavinnslu, skjalamál og miðlun upplýsinga ásamt fleiri verkefnum sem tengjast mannauðsmálum og miðlun.