Bílaumboðið Askja leitar að metnaðarfullum og drífandi aðilum í sumarafleysingarstörf við sölu bifreiða. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, KIA, Honda og Smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks. Virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.