Fjarskiptastofa leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að taka þátt í greiningu og þróun samkeppnismála á fjarskiptamarkaði.
Um er að ræða krefjandi starf í faglegu og metnaðarfullu umhverfi. Þú verður hluti af öflugu teymi sérfræðinga þar sem hagræn, tæknileg og lögfræðileg þekking sameinast við úrlausn fjölbreyttra og mikilvægra verkefna.
Í starfinu felst að greina stöðu og þróun markaðarins, leggja mat á samkeppnisaðstæður og móta aðgerðir sem stuðla að heilbrigðri samkeppni með hag neytenda að markmiði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fjarskiptastofa er eftirlitsstofnun á fjarskiptamarkaði og með netöryggi. Er stofnuninni m.a. ætlað það hlutverk að vinna gegn röskun eða takmörkunum á samkeppni á fjarskiptamarkaði. Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis. Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starfsmenn fái tækifæri til að sinna áhugaverðum verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Um er að ræða starf sérfræðings á stjórnsýslusviði stofnunarinnar og er starfshlutfall 100%.
Fjarskiptastofa hvetur áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is)