Landnámssetrið í Borgarnesi leitar að manneskju með reynslu, frumkvæði og áhuga í eldhúsið á veitingastað okkar. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða reynslu af því að vinna í eldhúsi og geta unnið sjálfstætt við matreiðslu. Landnámssetrið leggur áherslu á hollustu og ferskleika. Matseðill okkar samanstendur af góðum grænmetisréttum og hefðbundinni íslenskri matargerð. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.