Við leitum að þremur öflugum íslenskufræðingum með góða tæknikunnáttu og áhuga á að starfa með okkur á skrifstofu Alþingis. Meginverkefnin eru yfirlestur og útgáfa á þingskjölum og ræðum ásamt aðstoð við þingfundi. Unnið er þvert á deildir innan sviðsins. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi störf í lifandi starfsumhverfi.
Þingfunda- og útgáfusvið annast undirbúning þingfunda og veitir forseta, varaforsetum og þingmönnum faglega ráðgjöf og aðstoð við framkvæmd þeirra. Þá ber sviðið ábyrgð á útgáfu á þingskjölum og umræðum í þingsal, Alþingistíðindum og lagasafni. Nánari upplýsingar um hlutverk sviðsins má finna á vef þingsins.