Sérkennari óskast til starfa í leikskólanum Austurborg, Háaleitisbraut 70, 103 Reykjavík. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Austurborg er fimm deilda leikskóli þar sem einkunnarorðin eru vil, get og kann.
Leikskólinn vinnur í anda hugmyndafræði Reggio Emilia með áherslu á hreyfingu og skapandi starf. Við erum LAL –skóli http://www.leikuradlaera.is sem er námsleið í kennslu. Við leggjum áherslur á góðan starfsanda þannig að hver og einn fá notið sín í starfi.
Leikskólinn er sífelldri þróun og mótun og óskum við eftir áhugasömum kennara sem er tilbúinn að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera hluti af okkar faglega og skemmtilega samfélagi.
Myndband um leikskólann: https://www.austurborg.is/96-prufa/899-myndband
Í Austurborg er gott að vera og þar fer fram metnaðarfullt, skemmtilegt og gefandi starf.
Sérkennslustarfið sem um ræðir er stuðningur við barn með sérþarfir
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu sérkennara.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar veitir Ísleifur Örn Garðarson, aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu Isleifur.Orn.Gardarsson@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara