Vöruhús 66°Norður leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með ríka þjónustulund í framtíðarstarf. Um er að ræða fullt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum og vill taka þátt í að tryggja skilvirka afgreiðslu vefpantana, skila og sendinga á vörum fyrirtækisins.
Vinnutími er 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudags og 8:00-15:00 á föstudögum.
Fyrsti starfsdagur er áætlaður um miðjan maí 2026.