Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Byko

Sölufulltrúi í lagnadeild (sumarstarf) - BYKO Suðurnesjum

Byko · Víkurbraut 4, 230 Reykjanesbær
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-20

Við í BYKO á Suðurnesjum erum að leita að öflugum einstaklingum til liðs við okkur í sumar. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

 

Um er að ræða sumarstarf í lagnadeild á Suðurnesjum.

 

Við leitum að starfsfólki með:

  • Ríka þjónustulund
  • Stundvísi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lyftarapróf, kostur
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Bílpróf, skilyrði

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Móttaka og frágangur á vörum
  • Tiltekt pantana 
  • Önnur tilfallandi verkefni

 

Vinnutími er alla virka daga, ýmist 08:00 – 16:00 og 10:00 – 18:00, og annan hvern laugardag.

 

Við leitum að einstaklingum sem geta hafið störf í maí/júní og unnið út sumarið. 

 

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

 

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

 

Umsóknarfrestur er til 20.apríl 2026 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

 

Nánari upplýsingar veitir Þórður I. Þorbjörnsson, verslunarstjóri (thordurith@byko.is).

Sækja um →

Launamat

836.000
kr / mánuð
Heimild: VR Launakönnun
Nánar: VR: Sölufulltrúi
Ársstofa: 10.032.000 kr
Traust: 80%