Komdu að vinna fyrir mikilvægasta fólkið!
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti sitt í leikskólann Suðurvelli sem staðsettur er við Suðurgötu 1-3, 190 Vogar.
Vinnutíminn er frá kl: 7:45 -15:45 alla virka skóladaga.
Starfið felst í undirbúningi fyrir morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu, afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum i eldhúsi. Starfsmenn mötuneyta panta inn af pöntunarvef Skólamatar og senda inn dagsskýrslur.