Síminn leitar að drífandi einstaklingum í framtíðarstarf sem felur í sér þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina okkar. Þjónustufulltrúar Símans eru úrræðagóðir, veita framúrskarandi þjónustu og leitast við að koma til móts við þarfir og væntingar viðskiptavina. Við leitum að aðilum með framúrskarandi þjónustuhugsun og frábæra samskiptahæfni til að þjónusta nýja og núverandi viðskiptavini Símans, og leggja sig fram við að uppfylla þarfir og væntingar þeirra.
Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu þar sem unnið er á 8 klst. vöktum, þar sem áhersla er lögð á jafnvægi og vaktaplön eru mótuð í samráði við starfsfólk.