Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Mosfellsbær

Skemmtilegt sumarstarf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða

Mosfellsbær · Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
TEMPORARY alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-20

Skemmtilegt sumarstarf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða. 

Erum við að leita að þér?

Við leitum eftir drífandi og líflegum starfskrafti sem hefur mikinn áhuga á samskiptum og að vinna með fólki. Mjög skemmtilegt og gefandi starfsumhverfi.

Þjónustukjarninn Krókur þjónustar einstaklinga sem eiga við geðræna erfiðleika að stríða. Veitt er fjölbreytt þjónusta bæði innan og utan starfsstöðvar allan sólarhringinn.

Starfsmenn veita íbúum aðstoð við daglegar athafnir, félagslega virkni og hjálp til sjálfshjálpar. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.

Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr. 38/2018.

Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum). Um sumarstarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi starfi.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026 

Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt nokkrum orðum um af hverju þú telur þig hæfa/n í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnes Hekla Árnadóttir, forstöðumaður Áfangaheimilisins á agnesa@mos.is Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%