Við leitum að fjölhæfum og metnaðarfullum stjórnanda listadeildar Seyðisfjarðarskóla.
Seyðisfjarðarskóli skiptist í grunnskóladeild, leikskóladeild og listadeild. Sýn skólans er sú að í hverjum nemenda búi fjársjóður. Hlutverk skólans er að þroska þann sjóð, mennta ábyrga, hæfa og skapandi einstaklinga í samvinnu við heimilin og nánu samstarfi deildanna, í samræmi við aðalnámskrá leik-og grunnskóla, lög og reglugerðir.
Ráðningartími er frá 1. ágúst næstkomandi. Um framtíðarstarf er að ræða.