Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Suðausturumdæmi. Aðalstarfsstöð umdæmisins er á Selfossi en sláturhúsin eru staðsett á Selfossi og Hellu. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla og dýravelferðar.
Hæfniskröfur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Thelma Dögg Róbertsdóttir, héraðsdýralæknir, á netfanginu thelma.robertsdottir@mast.is í síma 530 4800. Við búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur viðburði jafnt og þétt yfir árið.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini og gilt ökuskíretni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.