Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Hörðuvallaskóli

Skrifstofustjóri í Hörðuvallaskóla

Hörðuvallaskóli · Baugakór 38, 203 Kópavogur
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Hörðuvallaskóli óskar eftir skrifstofustjóra í  80% -100% starf

Við leitum að þjónustulunduðum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í lifandi skólastarfi og styðja við daglegan rekstur skólans.

Í Hörðuvallaskóla eru um 520 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Starfið hentar vel einstaklingi sem þrífst í hröðu og lifandi starfsumhverfi.

Ráðningartími og starfshlutafall

Um er að ræða  80% - 100% starf og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Vinnutími hefst kl. 7:30 á morgnana.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%