Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Isavia Innanlandsflugvellir

Umdæmisstjóri/flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli

Isavia Innanlandsflugvellir · Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-13

Isavia Innanlandsflugvellir ehf leitar að framsýnum leiðtoga til að leiða flugvallarsamfélagið á Akureyrarflugvelli auk þriggja annarra áætlunarflugvalla og átta lendingarstaða sem tilheyra umdæmi 3. Akureyrarflugvöllur er vaxtarsproti í flugvallarkerfi landsins þar sem stöðug aukning hefur verið í millilandaflugi.  Við leitum að reynslumiklum aðila sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi og skemmtilegt starf. 

Helstu verkefni:

•            Leiða teymi stjórnenda flugvallarins og styðja einstaklinga þess til vaxtar

•            Taka virkan þátt í að byggja upp og stuðla að uppbyggjandi menningu sem er lykillinn að góðri öryggismenningu

•            Ábyrgð á þjálfun og símenntun starfsfólks

•            Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagsáætlunargerð

•            Eftirfylgni og innleiðing á stefnu Isavia samstæðunnar

•            Ábyrgð á að innri og ytri kröfur í starfsleyfi séu innleiddar samkvæmt áætlun og aðkoma að gerð viðeigandi skjala til þess

•            Ábyrgð á að gæða- og öryggisstjórnunarkerfi sé virkt innan umdæmisins, þ.m.t. umbætur vegna frávika og atvika. 

•            Fylgja eftir að notendur flugvallarins samræmi verklag samkvæmt öryggisstefnu og öryggisráðstöfunum flugvalla, hlíti þeim

 

Hæfniskröfur:

•            Háskólapróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi

•            Reynsla af stjórnun, rekstri, breytingastjórnun og áætlanagerð

•            Þekking og reynsla af innleiðingu og eftirfylgni öryggis- og gæðastjórnunarkerfa

•            Leiðtogahæfileikar, skipulögð og öguð vinnubrögð

•            Framúrskarandi samskiptahæfni

•            Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti

Áhugsamir einstaklingar, án tillits til kyns og uppruna, eru hvattir til að sækja um. 

Starfsstöð: Akureyri

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Ósk Arnarsdóttir mannauðs- og þjálfunarstjóri, arna.arnarsdottir@isavia.is 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%