Gigtarfélag Íslands óskar eftir sjúkraþjálfara í 70 - 100% starf. Gigtarfélag Íslands hefur undanfarið gengið í gegnum miklar breytingar. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn og félagið hefur flutt í nýuppgert og hentugt húsnæði í Brekkuhúsum 1 í Reykjavík þar sem aðgengi og aðstaða er til fyrirmyndar. Mikil tækifæri eru til að móta starfsemi sjúkraþjálfunardeildar félagsins á nýjum stað og leigan hjá okkur er mjög hagstæð. Flestir skjólstæðingar sjúkraþjálfunarinnar er fólk á öllum aldri með gigtarsjúkdóma og er þetta því gott tækifæri fyrir sjúkraþjálfara sem hefur áhuga á gigt. Margir eru í langtímameðferð hérna hjá okkur og því gefst tækifæri til að vinna með hvern einstakling til lengri tíma. Félagið hefur einnig yfir að ráða litlum sal þar sem hægt er að sinna hópþjálfun. Það eru ekki bara gigtarsjúklingar sem koma í sjúkraþjálfun til okkar, það eru allir velkomnir.