Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Snælandsskóli

Kennarar óskast á miðstig og yngsta stig í Snælandsskóla

Snælandsskóli · Víðigrund
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Snælandsskóli er heildstæður um 470 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum í gegnum tíðina. Skólinn er Grænfána skóli í samvinnu við Landvernd,  skólinn styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og þá er skólinn líka Réttindaskóli Unicef.

Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.

 

Starfssvið og helstu verkefni

Snælandsskóli óskar eftir almennum kennurum á miðstig og yngsta stig auk þess að sinna umsjónarkennslu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Grunnskólakennari.

Kennslureynsla og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum er æskileg.

Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.

Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.

Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.

Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.

Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.

Góð færni í íslensku er nauðsynleg.

 

Ráðningartími og starfshlutfall

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2026. Bæði er um að ræða ótímabundnar stöður en einnig stöður til árs vegna afleysingar með möguleika á framlengingu að því loknu.

 

Aðrar upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið. 

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar M. Ólafsson skólastjóri í síma 860-3526 eða netfangið brynjarm@kopavogur.is.

Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum ráðningarvefinn alfred.is.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%