Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Leikskólinn Sjáland

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig

Leikskólinn Sjáland · Vesturbrú 7, 210 Garðabær
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-06

Langar þig að hafa áhrif og skipta máli í lífi dýrmætustu íbúa Garðabæjar?

Við leitum að snillingi í fullt starf frá byrjun ágúst með það að sjónarmiði að um framtíðarstarf sé að ræða. 

Við erum leikskóli í mikilli uppbyggingu, frábært tækifæri til að fá að taka þátt í að byggja upp skólann með frábæru teymi.

Leikskólinn Sjáland er sjálfstætt starfandi leikskóli sem vinnur eftir Fjölvísistefnunni. Hún byggir á virðingu fyrir margbreytileika fólks og fjölbreyttum námsaðferðum. Markmiðið er að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir og stuðla að jákvæðri og sterkri sjálfsmynd. Gildi okkar í starfi eru jákvæðni, sjálfstæði og virðing.

Nú leitum við að góðum einstaklingum til að sinna uppeldi og menntun ungra barna en mikið svigrúm er fyrir sjálfstæði í hugmyndavinnu og verkefnavali. Leikskólinn leggur upp úr því að öll samskipti séu hlý og virðingarrík og að börnunum sé mætt af mikilli alúð og fagmennsku.  

Skólinn er staðsettur við ylströndina í Sjálandshverfinu í Garðabæ í nýlegu og rúmgóðu húsnæði.

Nánari upplýsingar um skólann má fá í síma 578-1220

Eingöngu kemur til greina að ráða fólk sem hefur lokið B.ed gráðu í leik- eða grunnskólaakennslu, uppeldis- og menntunarfræði, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun eða einstaklinga með leyfisbréf í leikskóla/grunnskóla.Góð hæfni í íslensku er grunnskilyrðiGood Icelandic language skills required

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%