Hefur þú gaman af mannlegum samskiptum og góðu skipulagi? Við hjá Lækningu leitum að jákvæðum og þjónustuliprum starfsmanni í okkar frábæra teymi.
Sem hluti af móttökuteyminu ert þú gjarnan fyrsta snerting viðskiptavina við þjónustuna okkar. Þú tekur á móti gestum af fagmennsku og hlýju, svarar fyrirspurnum í síma og á staðnum og tryggir að móttakan gangi hnökralaust fyrir sig. Starfið felur jafnframt í sér ýmis almenn skrifstofustörf og önnur verkefni sem styðja við vandaða og faglega þjónustu okkar.
Ert þú rétta manneskjan?
Við leitum að einstaklingi sem:
Starfið:
Um framtíðarstarf er að ræða í u.þ.b. 80% starfshlutfalli með möguleika á frekari afleysingum eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan maí.
Í boði er líflegur vinnustaður með góðum starfsanda og gott vinnumhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Lækningar, í síma 590-9200 og á hildur@laekning.is
Hjá Lækningu er að finna sérfræðinga á ýmsum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Við bjóðum upp á nútímalegar og vel útbúnar móttökustofur og fullkomnar skurðstofur í faglegu og vinalegu umhverfi.