Hjá VERKVIST leitum við að öflugum og reynslumiklum sérfræðingi til liðs við innivistar- og byggingartækniteymið okkar. Við leitum að einstaklingi sem vill taka þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði ástandsúttekta, rakaskimunar, rakamælinga, sýnatöku, ráðgjafar, verklýsinga, útboðsgagna, kostnaðarmats, eftirlits og verkefnastjórnar.
Við erum sérhæfð verkfræðistofa með skýra sýn: byggingar eru fyrir fólk. Við viljum leggja okkar af mörkum til að bæta byggingariðnaðinn, auka gæði mannvirkja og stuðla að því að byggingar séu vistvænar, heilnæmar, endingargóðar og hannaðar með þarfir fólks að leiðarljósi.