Leikskólasérkennari óskast til starfa í leikskólann Engjaborg.
Engjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi.
Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum. Í Engjaborg vinnur sérkennari/þroskaþjálfi í stuðningsteymi.
Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun