Akraneskaupsstaður auglýsir eftir starfsmanni til starfa í íþróttamannvirkjum, m.a. við klefagæslu í kvennaklefa og sundlaugarvörslu. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna á Akranesi.
Áhersla er lögð á góða samskiptahæfni, sveigjanleika og þjónustulund.
Viðkomandi þarf að vera 18 ára eða eldri.
Um vaktavinnu er að ræða og unnið er bæði morgun, kvöld og helgar. Gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í byrjun sumars.