Malbikstöðin óskar eftir að ráða öflugan og lausnamiðaðan einstakling í fjölbreytt og krefjandi starf við viðhald og framleiðslu. Viðkomandi þarf að búa yfir góðu verkviti, njóta þess að sinna fjölbreyttum verkefnum og geta unnið undir álagi þegar stór verkefni eru í gangi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Um Malbikstöðina
Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir (lovisa@intellecta.is) og Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511-1225.