Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Grunnskóli Reyðarfjarðar · Heiðarvegur 14A, 730 Reyðarfjörður
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-09

Grunnskóli Reyðarfjarðar óskar eftir að ráða kennara til kennslu eftirtalinna námsgreina fyrir skólaárið 2026-2027: umsjón á yngsta-, mið- og unglingastigi, dönsku, náttúrugreinar, samfélagsfræði, stærðfræði, íþróttir með áherslu á sundkennslu, sérkennslu og ÍSAT kennslu. Einnig er leitað að kennurum til að kenna list- og verkgreinar: textílmennt, hreyfingu og leiki, tónmennt, legó og upplýsingatækni.
Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar hefur það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks með samstarf og samvinnu að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, grunnrey.is   

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%