Langar þig að sinna viðhaldi og þróun vélbúnaðar og lagnakerfa og tryggja þannig áreiðanlegan rekstur stærstu jarðvarmavirkjunar í Evrópu?
Um er að ræða ábyrgðarstarf í stærsta jarðvarmafyrirtæki á Íslandi og felur í sér sérfræðihlutverk, tengd vél- og lagnabúnaði veitukerfa í virkjunum ON.Helstu verkefni snúa að rekstri og viðhaldi á gufu-, kaldavatns-, niðurrennslis- og varaveitna tveggja jarðvarmavirkjana með samanlagt yfir 427 MW í uppsettu afli í raforku og 665 MW í varmaafli.